Kanadískir vísindamenn þróa lyf sem á að vernda heilann eftir heilablóðfall.

Hér er slóð á merkileg frétt. Kanadiskir vísindamenn eru að  þróa lyf sem verndar heilann eftir heilablóðfall/slag.

Canadian Scientists Develops World's Most Advanced Drug To Protect The Brain After A Stroke

A new drug called PSD95 inhibitor that has been in development by scientists at the Toronto Western Research Institute (TWRI), Krembil Neuroscience Center for several years to protect the brain against the damaging effects of a stroke in a lab setting, has just attained the most advanced stage in the development of drugs, i...

Hér er slóð á fréttina/To read the full article, please go to:
http://www.medicalnewstoday.com/articles/242440.php


Lífdagar tjarnarinnar taldir.

 

Allur sá byggingamassi aðfluttur  og eða nýbyggður sem leifður hefur verið í Vatnsmýrinni, Öskjuhlíðinni og nánasta umhverfi, er að eyðileggja,  með drenum og niðurföllum sem þurka upp votlendið, allt lífríki tjarnarinnar og Vatnsmýrarinnar.. Þessi breyting á vistkerfinu  kemur í veg fyrir eðlilega fæðusköpun fyrir lífríki tjarnarinnar. Ef svo síðan eins og horfur eru á að kjánum  verði að ósk sinni að taka flugvallarstæðið og allt ósnortið  land þar um kring undir nýbyggingar , þá geta menn nú kysst líf tjarnarinnar  endanlega bless og ekki meira um það.
Það færi þá svipað um þá dýrð og fjörurnar sem voru kringum Reykjavík, sem allar eru horfnar, nema 50 metrar í Laugarnesi og ein heimatilbúin ylströnd í Nauthólsvík,


Mengun og flakk.

Er rétt að banna alfarið óþarfa ferðamennsku eða flakk eins og sumir kalla það. Margir eru nú  farnir að sjá að ferðaiðnaðurinn er sú grein sem veldur mestri mengun. Menn eru að átta sig á þessu og sum samtök sem kenna sig við náttúruvernd og hafa áður einbeitt sér að framleiðslugreinum iðnaðarinns, farin að snúa við blaðinu og líta á hvað knýr þörfina. Hvers vegna er þetta búið til og með þessum óæskilegu afleiðingum.  Það er jú eðli framleiðslugreinarinnar að laga sig að og sinna eftirspurn. er svarið. Sem er og rétt. Því er það að verða ofaná að eini möguleikinn til að ná einhverjum árangri í vernd náttúru og loftslags, sé að aðlaga þörfina  minnstum óæskilegum afleiðingum. Sum ríki eru þegar farin að sporna við, eins og Norrænu velferðarríkin, Noregur og Ísland. Með sértakri skattlagningu lággjalda flugfélaga í Noregi og náttstaðsgjalda,flugvallagjalda og fl. á Íslandi.
Það er réttilega sagt að það er  engin þörf fyrir allar þessar álverkssmiðjur ef allir sætu heima og flugvélaskógurinn yrði ekki endurnýjaður. Pústið  úr þessum hundruð þúsunda flugvéla sem varla ná að þverfótast um allann   himinflötinn er annar þáttur. Svo koma bílarnir, rúturnar, og allt hitt endalaust sem tengist óþarfa flakki, sem mætti að ósekju takmarka ennfrekar.

Ps.Vita opinberir strafsmannastjórar sem úthluta ferðaheimildum ekkert um tilkomu internetsins, fjarfunda, fjarkennslu og þar fram eftir götunum. Ferðalög þeirra manna bara aukast með auknu framboði, eins og allstaðar sé skyldumæting.

Frétt um 


Hús flutt. Var sett met.?

Um húsfluttninga Sveinbjörns H. Pálssonar.

Var þyngdarmet slegið?

Árið 1953 flutti Sveinbjörn Pálsson húsið Lækjargötu 10 , en það var um 160 tonn að þyngd.

 Það var eitt af fjölmörmörgum húsum sem Sveinbjörn  flutti um set  á árunum eftir stríð fram til ársins 1960. bæði hús hér á Höfuðborgarsvæðinu og einnig út um allt land, en ég held að síðasta húsið sem hann flutti hafi verið Dillonshús í Árbæjarsafn.

Látum þyngdina kannski liggja milli hluta en aðferðirnar voru ólíkar enda engir risakranar til á þeim tímum. Þá voru húsin tjökkuð upp með glussatjökkum, bitum og bobbingum skotið undir, vögnunum bakkað undir og húsinu slakað niður. Það kom fyrir að húsin væru  svo stór að ekki dugði einn vagn heldur þurfi tvo, þrjá eða jafnvel fjóra. Tveir að framan og tveir að aftan er íttu vögnunum á undan sér, en það átti einmitt við um Lækjarghötu 10B. 

 Textinn í myndunum er smár en það má smella og tvísmella til að stækka hann.

  snap_2010_12_09_16_01_42_015.png

 

fff

 

 

 

 

 

  Snap_2010.12.07 11.45.36_013

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Snap_2010.12.07 10.56.47_001

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér má sjá myndir frá fréttum af húsfluttningum.

 

Snap_2010.12.07 11.10.12_002

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Snap_2010.12.07 11.14.45_005

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Snap_2010.12.07 11.37.53_009  

 

 

 

 

 

 

 

 

Flest húsin sem voru á hreyfingu hér í Reykjavík, mörg hver  úr miðbænum, fengu nýjan heimastað á Teigunum, í Vogunum og í Kleppsholtinu. Einnig voru mörg hús á flakki  á flugvallarsvæðinu og   í Skerjafirðinum. 

Mér dettur oft í hug þegar verið er að vappa með mikrofon um miðbæinn og lýsa húsunum þar að það mæti alveg eins rölta um Skipasundið eða Efstasundið í sama tilgangi og segja sögu miðbæjarins.

Menn sem unnu með föður mínum í þessum fluttningum voru engir njólar og urðu sumir síðar  kunnir af öðrum verkum  og má þar nefna Guðmund Hjartarson  síðar Seðlabankastjóra. Viðar Karlsson, skipstjóra á Akranesi. Aflakong í mörg ár á síldar og loðnuveiðunum, Halldór Björnsson stofnanda Gúmmívinnustofunnar. Gústi Finnson þekktur sem Gústi græni en nafngiftina fékk hann af því að Dimond trukkarnir sem sá ökusnillingur ók við flutningana voru  ávallt í græna herlitnum enda ættaðir úr Sölunefnd Varnarliðsins eins  og flest tól er notuð voru.

 


Hjólreinar

Alvarlegustu og algengustu slys er hjólreiðarmenn lenda í á Bretlandi  verða þegar hjólreiðarmaður hjólar nálægt bíl í stæði og hurð bílsins er opnuð. Hjólið lendir á hurðinni (veiðist) og hjólreiðarmaðurinn flýgur yfir og í götuna. Bretar tóku uppá því eins og hér er gert nú að fá hjólreiðarfólk til að hjóla meðfram bílaröðum en áttuðu sig fljótt á mistökunum. Það er nú  reynt, eftir að mistökin urðu ljós á Bretlandi að fá hjólreiðarfólk til að varast að hjóla upp við bifreiðar sem lagt hefur verið við gangstéttarbrúnir, vegna þessarar hættu. Hér eru einhverjir sem átta sig ekki á þessari hættu, búnir að láta mála mindir á götur um alla borgina sem hvetja hjólreiðarfólk til að taka þessa áhættu. Benda hjólreiðendum á að halda sig sem næst kyrrstæðum bílum. Þetta er stórhættulegt og þarf að afmá þessar merkingar hið snarasta eins og grænu málninguna sem  var á Hverfisgötunni. 

Slysahætta af merkingum.

Alvarlegustu og algengustu slys hjá hjólreiðarmönnum á Bretlandi eru sögð verða þegar hjólreiðarmaður hjólar nálægt bíl í stæði og hurð bílsins er opnuð. Hjólið lendir á hurðinni (veiðist) og hjólreiðarmaðurinn flýgur yfir og í götuna. Það er reynt á Bretlandi að fá hjólreiðarfólk til að varast að hjóla upp við bifreiðar sem hefur verið lagt við gangstéttarbrúnir, vegna þessarar hættu.
Hér eru einhverjir misvitrir borgarpólitíkusar með hjóladellu, búnir að láta mála mindir á götur um alla borgina sem hvetja hjólreiðarfólk til að taka þessa áhættu. Benda hjólreiðendum á að halda sig sem næst kyrrstæðum bílum. Þetta er stórhættulegt og þarf að afmá þessar merkingar hið snarasta eins og græna ruglið sem var á Hverfisgötunni.
 

Svar til bloggkonunnar Jennýar Baldursdóttur.

Rak mig harkalega á skrif þessarar konu sem hefur verið froðufellandi á annan sólarhring og því líklegast étið sápu í misgripum.
Froðufelli enn
17.8 2010 | 10:41 | 17 ummæli

//Ég er enn reið vegna þessa viðtals við yfirmann kynferðisbrotadeildar lögreglu.//

Ég ætla ekki að birta hér bloggið eða viðtalið en hvorutveggja má lesa á síðunni hennar ef fólk vill
.////// 24 ág 2010 Hún er nú búin að fjarlægja skrif sín um viðtal við Björgvin Björgvinsson lögreglumann af síðum sínum./////Batnandi og svo framvegis.

Mikið fer magur og ríður geyst, verður manni að orði við að lesa raunir þínar Jenný.
Björgvin Björgvinsson hefur ábyggilega á starfsævi sinni bjargað fleira fólki drukknu og í illu standi, eða í bara hremmingum heim til sín öruggu en þér órar og þú átt nokkurntímann eftir að gera . Kjaftamaskína með upphrópanir er það sem ég flokka þig undir. Hann er gegn og grandvar maður, þekktur um allt land úr handboltanum og fyrir lögreglustörfin.
Að fá yfir sig slíka dembu af þvætting og vandlætingu vegna ummæla um að fólk skuli fara varlega í vímunni segir meira um þá sem krjúpa, blána og beigja sig heldur en þann er sannleikann mælir og vill öllum gott.
Það að benda fólki á að passa sig er ekki það sama og að standa með þeim sem þarf að varast. Ef svo væri þá væru engar varnir, eða varnaðarorð viðhöfð. Hafðu skömm fyrir að atyrða góðan dreng sem nú hefur til að þóknast þér og öðru smámygli vikið til hliðar.

Af veraldarvefnum.
Dæmi um skrif konunnar,
Bjarni Ben: Skammastu þín og grjóthaltu kjafti. Sjálfur ertu með vægast sagt umdeilanlega fjármálafortíð sem tengist spillingu og vafasömum gjörningum. Eins og vel flestir í þínum rotna flokki. Mikið vildi ég að þetta útúrspillta hrunlið léti það eiga sig að trana sér í sífellu fram sem einu mögulegu bjargvættir þjóðarinnar.
Sýnir innrætið.

Um konuna
Á skrifum Jennýjar má sjá að hún er með rökin sín megin. Hún nálgast ásakanir sínar á Bjarna Benediktsson af yfirvegun, notar vandað orðaval og fellur ekki í fúlan pitt fúkyrða og heiftar, né stimplar hún stærsta stjórnmálaflokk landsins. Þá telur hún fortíð manna öllu skipta þegar þeir tjá sig um þjóðmál.

Morgunpósturinn
Jenný Anna Baldursdóttir í Morgunpóstinum árið 1994.
Eftir því sem komist verður næst þá hafa lengi verið uppi grunsemdir um að meðferð fjármuna athvarfsins hafi ekki verið í samræmi við bókhaldsvenjur. Hefur komið í ljós að Jenný A. Baldursdóttir, sem meðal annars hefur gegnt starfi viðtalsfulltrúa síðan í vor, fékk rúmlega 1,4 milljóna króna vaxtalaust lán fyrir þremur árum síðan, sem lítið sem ekkert hafði verið endurgreitt af þegar upp komst fyrir ári síðan. Veitti Jenný þá skýringu að um fyrirframgreiðslu væri að ræða. Síðan þá hefur verið dregið af launum Jennýjar fyrir þessu og hafa umtalsverðar upphæðir verið greiddar til baka, auk þess sem tryggingavíxill hefur verið lagður fram fyrir eftirstöðvunum. Einnig hafa verið gerðar athugasemdir við yfirvinnugreiðslur til Jennýar sem þóttu óeðlilega miklar. Þrátt fyrir að óumdeilt væri að Jenný hefði unnið langan vinnudag fyrir Samtökin, var uppgefin yfirvinna það mikil að tölurnar gátu ómögulega staðist. Sérstaklega þótti ámælisvert að mikil yfirvinna var skráð hjá henni nú síðustu mánuðina en á sama tíma hafði hún verið mikið frá vegna veikinda.

Það sem menn líta hins vegar alvarlegustum augum er að komið hefur í ljós að Jenný hefur haft aðgang að tékkareikningi Samtakanna, sem átti að vera lokaður. Þessum reikningi var Iókað fyrir nokkru síðan í kjölfar athugasemda um óútskýrðar greiðslur Jennýar af honum. Nú hefur hins vegar komið í ljós að Jenný hélt áfram að skrifa út ávísanir af þessum reikningi án þess að fylgiskjöl eða kvittanir lægju fyrir. Voru sumar þessara ávísana leystar út af sambýlismanni Jennýjar. Ekki er vitað með vissu um hversu háar upphæðir er að ræða en samkvæmt heimildum Morgunpóstsins er það ekki há upphæð sem dregin hefur verið af ávísanareikningnum.

Þegar þetta allt saman lá ljóst fyrir var Jennýju boðið að segja upp starfi sínu. Tók hún því boði.


mbl.is Segir ofstæki ráða ferðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðferðafræði fjárglæpamanna.

Það er þekkt aðferðafræði fjárglæframanna ef að þeim er þrengt að kenna um pólitískum ofsóknum. Þá geta þeir verið nokkuð vissir um að vanþroska pólitísk samtök, og bjánar í pólitík stökkvi um borð. Það sakar ekki heldur að eiga slatta af fjölmiðlum. Slík gulrót virkar eins og rafsegull á slíkt lið. Allt rættist þetta hér.
Þetta vissi og veit Jón Ásgeir vel og notfærir sér útí æsar.
Vegna þessa varð allt að gera til að stöðva fjölmiðlalögin
Hér virkaði þetta patent svo vel að Samfylkingin í heilu lagi, hluti VG og sjálfur forsetinn berstrípaður stukku straks um borð.
Það var hér Þýskur fræðimaður fyrir nokkrum árum sem hafði kynnt sér þessa aðferðafræði rækilega og skrifað um hana bók.
Hann lýsti þessu í útvarpsviðtali hér hjá Ríkisútvarpinu og sagði okkur vera að upplifa mynstrið.
Þetta viðtal var auðvitað ekki endurflutt í fréttum RUV enda ekki á réttri línu. Einnig tilheyrir í forskriftinni að veita rannsóknarstyrki til Háskóla.
Þá ánetjast prófessorarnir sem aurana fá. Einnig þekkt úr sögunni og nútímanum hér.
Það var einnig á RUV viðtal við fyrrverandi háskólakennara sem greindi frá því að hún var kölluð á teppið hjá stjórnanda skólans, sem hún vann hjá, fyrir að hafa tekið sem dæmi í kennslustund, eitt kúlufyrirtækið hér um hvernig farið væri að því að skrúfa upp pappírsverðið á fyrirtækinu. Það viðtal var ekki víðómað í fréttum heldur.
Henni var bent á í dvölinni á teppinu að vera ekki að gagnrýna þá sem sköffuðu.
Kári (IP-tala skráð) 19.8.2010 kl. 09:34

Froðufellandi Jenný Baldursdóttir.

Rakst á blogg þessarar konu sem hefur verið froðufellandi á annan sólarhring og því líklegast étið sápu í misgripum.
Froðufelli enn
17.8 2010 | 10:41 | 17 ummæli

Ég er enn reið vegna þessa viðtals við yfirmann kynferðisbrotadeildar lögreglu.

Ég ætla ekki að birta hér bloggið eða viðtalið en hvorutveggja má lesa á síðunni hennar ef fólk vill.

Mikið fer magur og ríður geyst, verður manni að orði við að lesa raunir þínar Jenný.
Björgvin Björgvinsson hefur ábyggilega á starfsævi sinni bjargað fleira fólki drukknu og í illu standi, eða í bara hremmingum heim til sín öruggu en þér órar og þú átt nokkurntímann eftir að gera . Kjaftamaskína með upphrópanir er það sem ég flokka þig undir. Hann er gegn og grandvar maður, þekktur um land allt úr handboltanum og fyrir lögreglustörfin , bæði hér í Reykjavík og á Austfjörðum.
Að fá yfir sig slíkan þvætting af vandlætingu vegna ummæla um að fólk skuli fara varlega í vímunni segir meira um þá sem blána og beigja sig undir heldur en þann er sannleikann mælir og vill öllum gott.
Það að benda fólki á að passa sig er ekki það sama og að standa með þeim sem þarf að varast. Ef svo væri þá væru engar varnir, eða varnaðarorð viðhöfð. Hafðu skömm fyrir að atyrða góðan dreng sem nú hefur til að þóknast þér og öðru smámygli vikið til hliðar.


Næsta síða »

Höfundur

KHS
KHS
Kuldabolinn sá, sá,
Étur börnin smá, smá.
Angurinn sá, sá.

Hef mikið  dálæti á mýrköttum. Þeir hafa sterka samfélagskennd og hjá þeim ríkir kynjajafnrétti.  

Motto Mýrkatta.

Berðu virðingu fyrir þeim eldri,vertu fyrirmind þeim yngri.
Vertu samvinnuþýður, við vinnum saman
Leiktu þér þegar þú getur. Stundaðu vinnu þegar þú átt.
Hvíldu þig á milli.
Láttu aðra fynna að þér er annt um þá, ekki fela tilfinningar þínar.
Láttu í ljós þitt álit. Láttu gott af þér leiða.

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband